![]() |
||
Unglingasöngdeild Tónlistarskóla Rangæinga heldur tónleika miðvikudaginn 16. maí kl. 19:30 í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Nemendur í söngdeildinni hafa lært söng í vetur hjá þeim Maríönnu Másdóttur og Þórunni Elfu Stefánsdóttur og ætla þau að flytja fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Allir eru velkomnir ! |
||
![]() |
||
Forskólatónleikar! Nú er skólaárið senn á enda og ætla forskólanemendur í 2. 3. og 4. bekk í grunnskólunum því að halda tónleika og sýna afrakstur vetrarins og spila nokkur lög. Fimmtudaginn 10. maí verða tónleikar í Laugalandsskóla í matsal skólans og hefjast þeir kl. 14:00. Mánudaginn 14. maí verða tónleikar hjá nemendum Grunnskólans á Hellu í Safnaðarheimilinu á Hellu og hefjast þeir kl.11:00. Þriðjudaginn 15. maí verða tónleikar hjá forskólabörnum Hvolsskóla í matsal skólans og hefjast þeir kl.10:10. Forskólakennarar vilja hvetja alla foreldra að koma á þessa tónleika hjá börnunum.
|
||
![]() |
||
Vortónleikar! Framundan eru vortónleikar hjá nemendum tónlistarskólans. Þriðjudaginn 8. maí verða vortónleikar á Laugalandi og hefjast þeir kl. 19:30. Miðvikudaginn 9. maí verða vortónleikar á Heimalandi og hefjast þeir einnig kl. 19:30. Fjölmargir af nemendum skólans koma fram og verður efnisskráin fjölbreytt. Allir eru hjartanlega velkomnir á tónleikana.
|
||
![]() |
||
![]() |
Páskafrí! Síðasti kennsludagur fyrir páskafrí hjá kennurum og nemendum tónlistarskólans er föstudagurinn 30. mars. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 11. apríl . Gleðilega páska og hafið það gott í páskafríinu. |
|
![]() |
||
NÓTAN uppskeruhátíð tónlistarskóla 2012 Svæðistónleikar Nótunnar fyrir Suðurland og Suðurnes, sem fóru fram um síðustu helgi, tókust mjög vel og getum við verið stolt af þeim nemendum okkar sem þar komu fram. Tónlistarskóli Rangæinga átti tvö atriði á svæðistónleikunum, Írena Víglundsdóttir söng og spilaði undir á píanó og strengjasveit undir stjórn Ulle spilaði. Öll fengu þau viðurkenningu fyrir þátttöku en voru ekki valin til áframhaldandi þátttöku á lokatónleikunum. Framundan eru lokatónleikar Nótunnar í Hörpu sunnudaginn 18. mars og verður þetta án efa mjög skemmtileg og áhugaverð hátíð, þar sem fram koma hæfileikaríkir tónlistarnemendur allsstaðar af landinu, einnig verða ýmsar uppákomur í húsinu þennan dag. Nánari upplýsingar www.notan.is Allir velkomnir - aðgangur ókeypis!
|
||
![]() |
||
Músíkfundir framundan! Músíkfundur á Hvolsvelli verður þriðjudaginn 20. mars kl. 17:30 í sal skólans. Músíkfundur á Hellu verður miðvikudaginn 21. mars kl. 17:30 í Safnaðarheimilinu. Flutt verða fjölbreytt tónlistaratriði, bæði einleiks- og samspilsatriði. Allir eru velkomnir!
|
||
![]() |
||
Nótan – uppskeruhátíð tónlistarskóla fer nú fram í þriðja sinn. Nótan 2012 verður með sama sniði og fyrri hátíðir. Skipulag og grunnhugsun hátíðarinnar byggir á því að þátttakendur séu frá öllu landinu, á öllum aldri og efnisskráin endurspegli ólík viðfangsefni á öllum stigum tónlistarnámsins. Haldnir eru fernir svæðisbundnir tónleikar víðsvegar um landið, þar sem ákveðin fjöldi atriða frá hverju svæði fyrir sig fær verðlaun sem veitir þátttökurétt á lokahátíð Nótunnar. Sameiginlegir tónleikar tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur, Suðurlandi og Suðurnesjum verða haldnir í Salnum í Kópavogi, sunnudaginn 11. mars 2012. Dagskrá: Kl. 11:30 Tónleikar I – grunnnámsnemendur Kl. 13:00 Tónleikar II - miðnámsnemendur Kl. 14:30 Tónleikar III - framhaldsnámsnemendur Kl. 16:00 Lokaathöfn – afhending viðurkenninga Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal fyrir þátttöku. Valnefnd veitir níu framúrskarandi atriðum viðurkenningarskjöl þar sem þátttökuflokkur er tilgreindur, þ.e. grunn-, mið- eða framhaldsnám, og viðurkenningarflokkur, þ.e. einleiks-/einsöngsatriði, samleiks-/samsöngsatriði eða frumsamið tónverk /eða frumlegt atriði. Af þeim níu framúrskarandi atriðum sem fá fyrrgreind viðurkenningarskjöl fá sjö atriði af þessu svæði verðlaunagrip Nótunnar sem veitir þátttökurétt á lokatónleikum uppskeruhátíðarinnar sem verða sunnudaginn 18. mars. Tónlistarskóli Rangæinga sendir tvö atriði á hátíðina sem bæði eru í grunnnámshópnum. Annars vegar er það strengjasveit undir stjórn Ulle Hahndorf og síðan einn söngnemandi Þórunnar Elfu hún Írena Víglundsdóttir. Við óskum þessum nemendum okkar góðs gengis á hátíðinni. |
||
![]() |
||
1. stigs tónleikar ! Miðvikudaginn 7. marsl kl. 17:30 verða tónleikar í Safnaðarheimilinu á Hellu. Á þessum tónleikum koma fram þeir nemendur okkar sem styttra eru komnir í námi og hafa flestir þeirra ekki lokið 1. stigi. Margir af þessum nemendum okkar eru því að þreyta frumraun sína að koma fram sem hljóðfæraleikarar, það verður mjög gaman að fylgjast með þessum efnilegu og áhugasömu nemendum okkar.
|
||
![]() |
||
![]() |
Samspilstónleikar !Miðvikudaginn 29. febrúar kl. 19:30 verða haldnir samspilstónleikar á Laugalandi. Dagskráin verður mjög fjölbreytt og fram koma hinir ýmsu samspilshópar. Þessa samspilstónleika höldum við líka í tilefni af Degi tónlistarskólana sem haldinn er hátíðlegur víða um land. Allir eru velkomnir á tónleikana. |
|
![]() |
||
|
Tónlistarskólar á Íslandi Á Íslandi starfa um 90 tónlistarskólar. Hjá þeim starfa um 900 kennarar og nemendur eru um 15.000 talsins. Fyrstu lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla voru sett 1963 og er nú kennt eftir samræmdum námskrám sem menntamálaráðuneytið gefur út. Í skólunum eiga nemendur kost á fjölbreyttu tónlistarnámi. Skólarnir gegna mikilvægu hlutverki í menningarlífi hvers byggðarlags. Undir einkennisorðinu Tónlistarskólarnir vinna skólarnir saman að ýmsum verkefnum. Dagur tónlistarskólanna er síðasta laugardag í febrúarmánuði ár hvert. Þá efna tónlistarskólarnir til hátíðar hver á sínum stað. Meðal viðburða má nefna opið hús, tónleika, hljóðfærakynningar og ýmis konar námskeið. Þá heimsækja nemendur einnig aðra skóla, vinnustaði og heilbrigðisstofnanir í þeim tilgangi að flytja tónlist. Uppskeruhátíð tónlistarskólanna kallast Nótan og er samvinnuverkefni Félags tónlistarskólakennara (FT), Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Samtaka tónlistarskólastjóra (STS). Hver skóli sendir fulltrúa á sameiginlega landshlutatónleika þar sem valin eru atriði til flutnings á hátíðartónleikum undir lok marsmánaðar ár hvert. Nemendum sem skara fram úr eru veittar viðurkenningar fyrir flutning sinn. |
|
![]() |
||
![]() |
Vorönnin ! Nú er skólastarfið komið á fullt á nýju ári að loknu jólaleyfi. Nemendur eru þegar farnir að undirbúa sig fyrir væntanleg verkefni á þessari vorönn, sem jafnvel eru þá hinir ýmsu tónleikar eða próftökur. Væntanlegir tónleikar á vegum skólans verða nánar auglýstir þegar nær dregur. |
|
![]() |
||
![]() |
Jólafrí! Senn líður að jólum og um leið jólafríi hjá nemendum og kennurum tónlistarskólans, en síðasti kennsludagur fyrir jól verður föstudagurinn 16. desember. Nokkrir af nemendum skólans ásamt kennurum sínum ætla að heimsækja dvalarheimilin í sýslunni mánudaginn 12. desember og flytja nokkur jólalög. Kl. 15:15 verður farið á Lund á Hellu og kl.16:30 verður farið á Kirkjuhvol á Hvolsvelli. Kennsla mun síðan hefjast aftur að loknu jólafríi fimmtudaginn 5. janúar. Starfsfólk Tónlistarskóla Rangæinga sendir nemendum sínum og fjölskyldum þeirra og öðrum velunnurum skólans bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár og þakkar fyrir góðar samverustundir á árinu sem er að líða. Sjáumst hress á nýju ári. |
|
![]() |
||
![]() |
Jólatónleikar! Framundan eru jólatónleikar hjá nemendum tónlistarskólans og verða þeir sem hér segir: Þriðjudagskvöldið 13. desember á Laugalandi kl. 19:30. Miðvikudagskvöldið 14. desember á Heimalandi kl. 19:30. Flutt verða fjölbreytt tónlistaratriði aðallega tengd aðventunni og jólunum, munu bæði söng- og hljóðfæranemendur skólans koma fram á þessum tónleikum. Allir eru velkomnir á tónleikana. |
|
![]() |
||
![]() |
Tónleikar í Stórólfshvolskirkju Sunnudaginn 11.desember 2011 kl. 20.00 Fram koma kennarar Tónlistarskóla Rangæinga þau Aalo Jaerving rafmagnsbassa, Grétar Geirsson harmoníku, Guðjón Halldór Óskarsson orgel, píanó, Guri Hilstad Ólason trompet, Hédi Maróti píanó, Jens Sigurðsson gítar, László Czenek horn, Maríanna Másdóttir söngur, þverflauta, Stefán I. Þórhallsson trommur, Ulle Hahndorf selló og Þórunn Elfa Stefánsdóttir söngur, þríhorn, jólabjöllur. Flutt verður fjölbreytt og skemmtileg jólatónlist frá ýmsum tímum. Aðgangseyrir er kr. 1.500. Frítt fyrir 16 ára og yngri. Allur ágóði af tónleikunum rennur í hljóðfærasjóð fyrir nýja kirkjubyggingu Stórólfshvolssóknar. Kaffi og piparkökur í safnaðarheimili að tónleikum loknum. Allir hjartanlega velkomnir. |
|
![]() |
||
![]() |
Forskólatónleikar! Í desember verða jólatónleikar hjá forskólanemendum í grunnskólum sýslunnar í 2. 3. og 4. bekk sem hér segir: Fimmtudaginn 8. desember spila nemendur úr Laugalandsskóla í matsal skólans kl. 14:00. Föstudaginn 9. desember spila nemendur úr Hvolsskóla í Gryfjunni sal grunnskólans kl. 10:30. Mánudaginn 12. desember spila nemendur úr Grunnskólanum á Hellu í Safnaðarheimilinu á Hellu kl. 11:10. Vonumst til að sjá sem flesta foreldra. |
|
![]() |
||
|
Leikskólaheimsóknir ! Nú um mánaðarmótin nóvember-desember ætla nokkrir af yngstu nemendum tónlistarskólans og einnig eitthvað af þeim eldri að halda tónleika fyrir leikskólabörnin í sýslunni. Mánudaginn 28. nóvember kl. 13:15 verða tónleikar í Tónlistarskólanum á Hellu fyrir leikskólabörnin í Heklukoti. Miðvikudaginn 30. nóvember kl. 10:00 verða tónleikar á Laugalandi fyrir leikskólabörnin þar. Föstudaginn 2. desember kl. 10:00 eru tónleikar í húsnæði skólans á Hvolsvelli fyrir leikskólabörnin í Leikskólanum Örk. Það er mikill spenningur hjá yngstu nemendunum yfir því að fara að spila fyrir litlu krakkana og eru mörg hver að stíga sín fyrstu spor opinberlega sem hljóðfæraleikarar. Þar sem aðventan verður gengin í garð og styttist í jólin verða jólalög á efnisskránni á þessum tónleikum. |
|
![]() |
||
Haustfrí ! Fimmtudaginn 27. og föstudaginn 28. október verður haustfrí hjá nemendum og kennurum Tónlistarskóla Rangæinga.
|
||
![]() |
||
Músíkfundir framundan! Músíkfundur verður á Hvolsvelli þriðjudaginn 18. október kl. 17:30 í húsnæði Tónlistarskólans. Músíkfundur verður á Hellu miðvikudaginn 19. október kl. 17:30 í Safnaðarheimilinu. Flutt verða fjölbreytt tónlistaratriði. Allir eru velkomnir! |
||
![]() |
||
|
Kennaraþing ! Fimmtudaginn 8. október verður kennaraþing hjá tónlistarkennurum á Suðurlandi, kennsla fellur því niður þennan dag, en hjá þeim kennarurum sem ekki hafa hug á því að sækja þingið þá verður um hefðbundinn kennsludag að ræða hjá þeim. Föstudaginn 9. október er kennaraþing hjá grunnskólakennurum og því ekki grunnskóli þennan dag í skólum sýslunnar, en um hefðbundinn skóladag er að ræða hjá Tónlistarskóla Rangæinga. Kennarar munu hafa samband við nemendur sína um tilhögun á kennslustund þennan dag. |
|
![]() |
||
Nú er lokið formlegri innritun í Tónlistarskóla Rangæinga, en mjög góð þátttaka var í innritun nýrra nemenda við skólann og bjóðum við alla nemendur okkar velkomna til samstarfs í vetur. Enn eru laus pláss í tónlistarnám á málmblásturhljóðfæri, bassagítar, slagverk og harmoniku. Þannig að ef þú hefur áhuga, þá endilega hafðu samband ! |
||
![]() |
||
![]() |
Innritun!Kæru Rangæingar! Innritun í Tónlistarskóla Rangæinga fyrir komandi skólaár verður sem hér segir: Miðvikudaginn 24. ágúst á Hellu frá kl. 14:00 – 17:00 Fimmtudaginn 25. ágúst á Hvolsvelli frá kl. 14:00 – 17:00 Staðfesta þarf eldri umsóknir og ganga frá greiðslu eða greiðslusamningi. Að venju verður boðið upp á ýmsa greiðslumöguleika og systkinaafslátt. Boðið verður upp á söngkennslu þ.á.m. söngnám fyrir unglinga. Kennt verður á eftirfarandi hljóðfæri: píanó, orgel, gítar, bassagítar, harmoniku, fiðlu, selló, slagverk, blokkflautu, þverflautu, klarinett, saxófón, trompet, horn og básúnu. Einnig verður boðið upp á Suzuki nám á fiðlu, en í því námi er lögð áhersla á virka þátttöku foreldra. Ulle tónlistarkennari (S: 616-7648) mun vera með kynningu á náminu þriðjudaginn 23. ágúst kl.16:00 í húsnæði skólans á Hvolsvelli. Bestu kveðjur, Skólastjóri og kennarar. |
|
![]() |
||
|
Sumarfrí! Þá er komið sumarfrí hjá kennurum og nemendum tónlistarskólans. Næsta skólaár verður boðið upp á sama framboð á tónlistarnámi og verður hefur. Að auki hefur skólinn ákveðið að bæta einni grein við tónlistarframboðið, en frá og með næsta hausti verður boðið upp á Suzukinám á fiðlu, þar sem byrjendur eru á aldrinum 6-8 ára. Í Suzukinámi er lögð áhersla á virka þátttöku foreldra allan tímann, bæði í tímum og heimanámi. Við gerum ráð fyrir því strax í haust að bjóða upp á kynningarfund um námið, þar sem Suzuki kennari okkar hún Ulle Hahndorf mun útskýra frekar hvernig svona nám gengur fyrir sig. Við viljum benda á að hægt er að nálgast umsóknareyðublað fyrir næsta skólaár hér á heimasíðunni, hægt er að fylla það út og senda okkur í tölvupósti sem viðhengi á tonrangrit@ismennt.is. Einnig hægt að prenta út og senda okkur í pósti á eftirfarandi heimilisfang: Tónlistarskóli Rangæinga, Við Vallarbraut, 860 Hvolsvöllur eða faxa til okkar í fax-númer 488-4289. Einnig verða formlegir innritunardagar í ágúst og verða þeir auglýstir nánar þegar þar að kemur. Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn. Sjáumst hress og kát næsta haust! |
|
![]() |
||
Skólaslit ! Skólaslit Tónlistarskóla Rangæinga verða miðvikudaginn 25. maí kl. 20:00 í Hvolnum. Þar taka nemendur skólans á móti vetrareinkunnarskjölum og þeim nemendum er luku prófi á skólaárinu verða veitt prófskírteini. Flutt verða nokkur tónlistaratriði. Hvetjum alla nemendur, foreldra og aðra velunnara skólans að mæta. Skólastjóri og kennarar. |
||
|
||
![]() |
Tónlistarsamvinna ! Tónlistarskóli Rangæinga og Tónskólinn í Vík eru með í gangi samstarfsverkefni þar sem nokkrum af nemendum þessa skóla ætla að halda sameiginlega tónleika. Nemendur skólana heimsækja hvorn annan og halda æfingadaga. Hópurinn heldur síðan tvenna tónleika, fyrri tónleikarnir verða föstudaginn 13. maí kl. 19:30 í Leikskálum í Vík og seinni tónleikarnir verða mánudaginn 16. maí kl. 19:30 í sal Tónlistarskólans á Hvolsvelli. |
![]() |
![]() |
||
|
Tónlistarheimsókn ! Í næstu viku kemur Lúðrasveit Vestmannaeyja í heimsókn til okkar og heldur tónleika í Grunnskólanum á Hellu og Hvolsskóla. Um er að ræða samstarfsverkefni Tónlistarskóla Rangæinga og Tónlistarskóla Vestmannaeyja, en 12 nemendur frá okkur munu spila með 28 manna sveit sem kemur frá Vestmannaeyjum. Þau koma upp á land mánudaginn 2. maí, hitta ,,okkar" krakka og byrja daginn á smá skemmtiferð. Svo fara þau í Þykkvabæinn, þar sem þau æfa, borða og gista í íþróttahúsinu. Þriðjudaginn 3. maí verða síðan tónleikar í Íþróttahúsinu á Hellu kl. 10:30 og í Hvolsskóla kl. 13:15 fyrr alla nemendur skólana. Stjórnandi sveitarinnar er Eggert Björgvinsson. Foreldrar eru velkomnir á tónleikana. |
![]() |
|
||
|
Píanóstilling. Á undanförnum árum höfum við safnað niður á lista nöfnum yfir þá aðila sem hafa viljað fá til sín píanóstillingarmann, en sú vinna hefur kannski ekki alltaf skilað sér, þess vegna viljum við núna breyta þessu fyrirkomulagi þannig að hver einn panti fyrir sig og á þeim tíma sem hverjum og einum hentar. Við bendum hér á tvo píanóstillingarmenn sem hægt er að hringja í: Davíð Ólafsson sími 893-7181 Stefán Birkisson sími 896-0222 |
|
© 2006 Tónlistarskóli Rangæinga |
||