Mat á tónlistarnámi

 

Reglur sem gilda um mat á námi úr Tónlistarskóla Rangæinga inn á námsbrautir Fjölbrautaskóla Suðurlands.

  • Að jafnaði er minnsta grunneining til mats Grunnpróf, þ.e. lokapróf grunnnáms, og er það metið til 6 eininga, óháð því hvenær því er lokið. Stundi nemandi samhliða nám í Tónlistarskólanum og Fjölbrautaskólanum getur hann þó fengið 2 eða 4 einingar metnar.

 

 

 

Grunnnám (1. - 3. stig)

Hljóðfæraleikur

 

1. stig

HLF 102

 

2. stig

HLF 202

 

Grunnpróf (3. stig)

HLF 302

  • Hafi nemandi lokið u.þ.b. hálfu miðnámi og fengið formlega staðfestingu Tónlistarskólans í því sambandi (sem 4. stigi í HLF) er það metið til 4 eininga í frjálsu vali hjá nemandanum.
  • Hafi nemandi lokið Miðprófi, þ.e. lokaprófi miðnáms, er heimilt að meta það til 12 eininga á kjörsviðum bóknámsbrauta en auk þess til allt að 12 eininga til viðbótar í frjálsu vali. Með prófskírteininu lætur Tónlistarskólinn fylgja yfirlit um staðnar námseiningar í tónheyrn (TÓH) og tónlistarsögu (TÓS) eftir því sem við á hverju sinni.

 

Miðnám (4. - 5. stig)

Hljóðfæraleikur

 

Uþb. hálfnað (4. stig)

HLF 404

 

Miðpróf (5. stig)

HLF 504

  • Hafi nemandi lokið u.þ.b. hálfu framhaldsnámi og fengið formlega staðfestingu Tónlistarskólans í því sambandi (sem 6. stigi í HLF) er það metið til 6 eininga á kjörsviði eða í frjálsu vali hjá nemandanum.“

 

Framhaldsnám (6. - 7. stig)

Hljóðfæraleikur

 

U.þ.b. hálfnað (6. stig)

HLF 606

 

Framhaldspróf (7. stig)

HLF 706

Selfossi 29. mars 2006

 

© 2006 Tónlistarskóli Rangæinga
Símanúmer Hellu: 487 5944
Símanúmer Hvolsvelli: 488 4280
Netfang: tonrang@ismennt.is