Námsgreinar 

Í byrjun skólaárs fá nemendur samskiptabók sem gerir samvinnu kennara, nemenda og foreldra auðveldari. Kennarar skrá í bókina hvernig heimanámi skuli háttað og einnig ýmsar ábendingar og skilaboð, eins t.d. dagsetningar á músíkfundum, tónleikum og prófum.

 

 

Forskóli

Allir nemendur í öðrum, þriðja og fjórða bekk í grunnskólum sýslunnar fá forskólakennslu á vegum tónlistarskólans í samstarfi við grunnskólana. Markmið

 

 

Hljóðfærakennsla

Fullt nám felur í sér eina klukkustund í hljóðfærakennslu á viku eða tvisvar sinnum hálftíma í grunn- og miðáfanganámi, en eina og hálfa klukkustund fyrir framhaldsnám. Píanóundirleikur fylgir með eftir þörfum.

Í skólanum er boðið upp á kennslu á eftirfarandi hljóðfæri:

  • Blásturshljóðfæri: blokkflautu, þverflautu, klarinett, saxófón, trompet, horn, básúnu, baritónhorn og túbu.
  • Gítar: klassískan gítar, rafgítar og rafbassa.
  • Hljómborðshljóðfæri: píanó, orgel, harmoniku og hljómborð.
  • Ásláttarhljóðfæri: ýmis hljóðfæri slagverksfjölskyldunnar.
  • Strokhljóðfæri: fiðla og selló.

 

Söngkennsla

Fullt nám í hefðbundnum klassískum söng felur í sér eina klukkustund í söngkennslu, hálfa klukkustund í undirleikstíma og eina og hálfa klukkustund í samsöng á viku í grunn- og miðáfanganámi, en framhaldsáfanganám felur í sér klukkutíma söngkennslu, klukkutíma undirleikstíma, eina og hálfa klukkustund í samsöng og einn klukkutíma í píanókennslu á viku. Söngkennari er með í öðrum hverjum undirleikstíma. Einnig erum við með söngnám fyrir unglinga á aldrinum 13-15 ára. Námið samanstendur af hálftíma söngkennslu og klukkutíma í samsöng á viku, undurleikur eftir þörfum.

 

 

Tónfræðigreinar

Tónfræðigreinar eru kenndar frá upphafi tónlistarnámsins. Tónfræði á 1. stigi er kennd í hljóðfæratímum með viðkomandi hljóðfærakennara, en frá 2. stigi til 5. stigs er tónfræðin kennd í fámennum hóp í klukkutíma á viku, í þessum kennslustundum er einnig tónheyrn tekin fyrir. Eftir að 5. stigi er lokið tekur við kennsla í tvö ár í hljómfræði. Nám í tónlistarsögu tekur þrjú ár, nemendur okkar byrja í því námi þegar þeir eru orðnir þrettán til fjórtán ára. Við viljum leggja áherslu á að tónfræðigreinanámið er mjög mikilvægt fyrir alla tónlistarskólanemendur, það er góður grunnur fyrir alla góða tónlistarmenntun auk þess að það er skyldupartur í prófkerfinu. Próf í hljóðfæra- og söngnámi taka ekki gildi fyrr en samsvarandi prófi í tónfræðigreinum sé lokið.

 

 

Samspil – samsöngur

Samspil er snar þáttur í allri tónlistariðkun og skal það vera eins stór þáttur í námi hvers nemenda og kostur er, enda getur það verið hvatning fyrir nemendur að taka þátt í samspili með öðrum nemendum..

Í tónlistarskólanum starfar skólahljómsveit er innheldur blásturs-, gítar- og strengjahljóðfæranemendur ásamt ásláttarhljóðfærum. Æfingar eru einu sinni í viku einn og hálfan klukkutíma í senn, ásamt því að fara í æfingabúðir og koma fram á tónleikum. Vorið 2003 fór lúðrasveit Tónlistarskólans í tónleikaferð erlendis.

Söngnemendur taka þátt í samsöng í námi sínu, sem er í eina og hálfa klukkustund á viku, einnig hafa unglingasöngnemendur einn klukkutíma á viku í samsöng. Einnig vinna allir söngnemendurnir saman, eins og t.d. á skólaárinu 2004-2005 þegar sett voru upp atriði úr söngleiknum Sound of Mucic við undirleik kennarahljómsveitar, við mjög góða þátttöku og ánægju nemenda. Haldnar voru tvær skólasýningar fyrir grunnskólanemendur í 4. – 10. bekk og einnig þrjár kvöldsýningar. Stefnt er að því að setja upp eitthvert söngverk annað hvert ár ef tækifæri gefst.

Ýmsir hljóðfærasamspilshópar æfa og koma fram í skólanum, t.d. gítar-, þverflautu- og klarinettsamspilshópar. Lögð er áhersla á að píanónemendur taki þátt í samspili eins oft og kostur er, oft koma þeir fram og spila fjórhent. Einnig eru valin saman hljóðfærapör (píanónemandi ásamt öðrum hljóðfæranemenda) sem oftast eru kannski systkini, vinir eða skólafélagar, þannig að þau eiga auðvelt með að æfa sig heima ef þau vilja. Á jóla- og vortónleikum hefur Tónlistarskólinn lagt áherslu á að reyna að hafa eins mörg samspilsatriði og hægt er.

 

 

Tónleikar

Tónlistarflutningur er eitt aðalmarkmið í tónlistarnámi, því er lögð mikil áhersla á að nemendur komi fram að minnsta kosti tvisvar á skólaárinu. Forskólanemendur koma fram einu sinni á hverri önn í sínum skóla. Söng- og hljóðfæranemendur skólans fá fjölmörg tækifæri til að koma fram á hinum ýmsum uppákomum á vegum skólans. Reglulega eru haldnir tvennir músíkfundir á hverri önn, haldnir eru tvennir jóla- og vortónleikar og farið er tvisvar sinnum á hverri önn á dvalarheimilin í sýslunni. Um vorið, fyrir páskafrí höldum við deildartónleika fyrir hvern hljóðfærahóp: píanódeildar-, söngdeildar-, gítardeildar-, blásaradeildar-, fiðludeildar- og harmoníkudeildartónleika. Einnig eru haldin svokölluð “baðstofukvöld” sem eru deildartónleikar fyrir fullorðna nemendur skólans.

 

 

Menningarferð

Tónlistarskólinn skipuleggur árlega menningarferð fyrir nemendur sína, til að auka ánægju og áhuga í náminu. Á skólaárinu 2004-2005 var farið á generalprufu hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og eftir pizzahlaðborð var farið í skemmtiferð í Keiluhöllinna. Í ár var farið í Íslensku Óperuna, pizzahlaðborð og í Skautahöllina í Laugardal. Þessar ferðir eru hugsaðar til þess að auka þekkingu og áhuga nemenda á tónlist.

 

 

Hljóðfæraleiga

Nemendum í hljóðfæranámi er boðið upp á leigja hljóðfæri. Þau hljóðfæri sem eru í boði eru fiðlur, blásturshljóðfæri, harmoníkur og hljómborð, hér er einungis um byrjendahljóðfæri að ræða og ætlast er til að nemendur sem lengra eru komnir í sínu námi eigi sín hljóðfæri.

 

© 2006 Tónlistarskóli Rangæinga
Símanúmer Hellu: 487 5944
Símanúmer Hvolsvelli: 488 4280
Netfang: tonrang@ismennt.is