|
Áfanga- og stigspróf Prófkerfi tónlistarskólana hefur á síðustu árum breyst, í staðinn fyrir stigspróf sem voru alls 8 stig, er búið að breyta yfir í 3 stór áfangapróf. Stofnuð var prófanefnd, sem sá um að öll próf yfir landið væru samræmd, nefndin sér um að senda prófdómara til viðkomandi tónlistarskóla. Þessi áfangapróf skiptast niður í
Undirbúningur fyrir þessi áfangapróf getur tekið nokkur skólaár, t.d. fyrir grunnprófið gæti undirbúningur tekið þrjú til fjögur ár eftir getu og áhuga hvers nemenda, þess vegna höldum við áfram í gamla stigakerfinu, eins konar millistig innan skólans, ástæða fyrir þessum millistigsprófum er að þau eru góð þjálfun fyrir nemendur í að koma fram og taka próf. Þessi millistigspróf eru dæmd af innanskólaprófdómara.
Skólinn stefnir að því að nemendur ljúki alltaf sambærilegu tónfræðigreinaprófi samhliða hljóðfæraprófi í lok skólaárs, ásamt því að kennarar gefi nemendum skriflega umsögn yfir ástundun og námsárangur.
|
|
© 2006 Tónlistarskóli Rangæinga Símanúmer Hellu: 487 5944 Símanúmer Hvolsvelli: 488 4280 Netfang: tonrang@ismennt.is |