|
Samstarfsaðilar Tónlistarskólans |
![]() |
Leikskólar Tónlistarskólinn er með samstarf við leikskólann Heklukot á Hellu og Leikskólann á Laugalandi, sem byggist á tónlistarkennslu fyrir börn á 4-5 ára aldri, einu sinni í viku, hálftíma í senn. Unnið er með hlustun og blæbrigðin: sterkt, veikt, sorglegt, glaðlegt, hratt og hægt. Nótnagildin ta, títí og ta-a eru kynnt til leiks og æfð með hinum ýmsu ásláttarhljóðfærum. Unnið er með nótnastrenginn og nóturnar g´, a´, h´ kynntar. Í framhaldi eru kennd einföldustu undirstöðuatriði í blokkflautukennslu. Þau koma síðan fram einu sinni á ári, yfirleitt um vorið. Einnig fá þau að heimsækja Tónlistarskólann og fá að hlýða á stutta tónleika og kynnast hinum ýmsu hljóðfærum.
|
![]() |
Grunnskólar Tónlistarskólinn er með mjög gott samstarf við alla grunnskólana í sýslunni. Í öllum skólunum fer fram forskólakennsla, í 2. og 3. bekk er kennt á blokkflautu, en í 4. bekk fá þau val um nokkur hljóðfæri. Síðan koma þau fram á jólagleði og vorhátíð grunnskólana. Sjá nánar undir Nám / Námsvísir. Nemendur tónlistarskólans taka virkan þátt í ýmis konar uppákomum á vegum grunnskólana.
|
![]() |
Dvalarheimilin Tónlistarskólinn heldur reglulega tónleika í báðum dvalarheimilum sýslunnar, það er Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli og Dvalarheimilinu Lundi á Hellu. Hljóðfæranemendur halda þrenna tónleika og söngnemendur tvenna tónleika árlega á báðum heimilunum, við mikla ánægju vistmanna.
|
![]() |
Kirkjur Tónlistarskólinn hefur mjög gott samstarf við kirkjur í sýslunni, nemendur fá aðstöðu í kirkjunum til að halda þar tónleika og koma einnig fram í athöfnum á vegum hennar.
|
|
© 2006 Tónlistarskóli Rangæinga Símanúmer Hellu: 487 5944 Símanúmer Hvolsvelli: 488 4280 Netfang: tonrang@ismennt.is |