Til nemanda

  • Æfðu þig daglega. Nám er vinna.
  • Skipuleggðu tíma þinn vel og reyndu að hafa fastan æfingatíma á hverjum degi.
  • Notaðu samskiptabókina til að skrá heimavinnu.
  • Fáðu fjölskyldu þína til að styðja þig í náminu og leyfðu henni að fylgjast með framförum þínum.
  • Ef þú æfir þig hægt þá lærir þú hratt!
  • Helgar og frídagar eru góðir æfingardagar.

Æfingin skapar meistarann!

 

 

Til foreldra

Í tónlistarnámi er mjög mikilvægt að nemendur séu áhugasamir og jákvæðir gagnvart náminu, það þarfnast mikillar skipulagningar og ákveðni að halda áfram náminu árum saman, þess vegna er mjög gott að foreldrar sýni tónlistarnámi barna sinna áhuga og fylgist með framvindu námsins og aðstoði þau ef með þarf, sérstaklega gagnvart yngri nemendum með því að skipuleggja með þeim æfingatímana.

Hljóðfæranám byggist á miklu leyti á daglegri og reglubundinni þjálfun og byggist því að verulegu leyti á heimanámi. Með reglulegum markvissum æfingum kemur fram góður og framúrskarandi árangur í náminu. Við mælum með að yngri nemendur æfi sig oftar og í skemmri tíma (ca. 25-35 mín.) en sjaldan lengur, en nauðsynlegt er að nemendur geti æft sig í ró og næði.

Tónlistarnám þarf að vera ánægjulegt og að nemandi sé stoltur af sinni vinnu, færni og framförum í náminu. Okkar reynsla er sú, að þeir nemendur sem náð hafa góðum árangri í hljóðfæraleik, hafa nánast án undantekninga notið góðs stuðnings og skilnings á heimilum sínum og jafnvel hjá skólanum sínum, þess vegna leggjum við áherslu á gott samstarf við heimilin og foreldrar eru alltaf velkomin í tónlistartíma með börnum sínum hvenær sem er. Eðlilegt er að áhugi nemenda haldist ekki alltaf jafnmikill í gegnum námið, en ef áhuginn dvínar í meira en tvær til þrjár vikur, er mikilvægt að kennarar og foreldrar/forráðamenn leiti orsaka og lausna.

Hlustun er mjög mikilvægur hluti af öllu tónlistarnámi og með því að nemendur hlusti á vel flutta tónlist, geta þau valið sér góðar fyrirmyndir í náminu, því geta foreldrar lagt okkur lið við að auka hlustun á fjölbreyttri tónlist og jafnvel þegar tækifæri gefast að fjölskyldan fari saman á tónleika, bæði hjá tónlistarskólanum og utan hans.

 

 

© 2006 Tónlistarskóli Rangæinga
Símanúmer Hellu: 487 5944
Símanúmer Hvolsvelli: 488 4280
Netfang: tonrang@ismennt.is